Hjúkrunarfræðingi veitt starfsleyfi eftir átta ára baráttu
Talsvert hefur verið fjallað um heimild erlendra einstaklinga til að sinna störfum í heilbrigðisþjónustu hér á landi á undanförnum misserum. Það var því fréttnæmt þegar pólskum hjúkrunarfræðing var veitt starfsleyfi eftir átta ára baráttu fyrir slíkum rétti. Lögmaður umrædds einstaklings er Kári Hólmar Ragnarssonar hdl., einn af eigendum Réttar lögmannsstofu.
Eins og fram kemur í umfjöllun Fréttablaðsins um málið úrskurðaði velferðarráðuneytið að Landlæknisembættið væri skyldugt til þess að veita einstaklingnum sem er pólskur ríkisborgari starfsleyfi, þrátt fyrir að ráðuneytið hefði við fyrra tilefni komist að þeirri niðurstöðu að einstaklingurinn sem um ræðir uppfyllti ekki viðmið um menntunarstig. Eftir að hafa fengið staðfestingu á neikvæðri niðurstöðu frá velferðarráðuneytinu leitaði umræddur einstaklingurinn eftir liðsinni Réttar. Var ákvörðuninni í kjölfarið snúið við.