Fréttir / News

Linda Íris Emilsdóttir í viðtali hjá The Independent vegna hvalveiðimótmæla

  |   Fréttir af stofunni

Í dag birtist á vef breska fjölmiðilsins The Independent umfjöllun um aktívistana Elissu Phillips og Anahitu Babaei, sem mótmæltu hvalveiðum hér á landi í september 2023.

Lögmenn Réttar hafa sinnt réttindagæslu fyrir mótmælendurna, sem og öðrum málum tengdum hvalveiðum á Íslandi. Linda Íris Emilsdóttir, lögmaður á Rétti og skipaður verjandi kvennanna tveggja, ræddi við fréttamann The Independent um sakamál mótmælendanna sem komið er fyrir dóm, tveimur árum eftir mótmælin, sem fjallað var um í fjölmiðlum hér á landi fyrir skemmstu.

Í viðtali við The Independent gagnrýndi Linda þá ákvörðun að fara með mál kvennanna tveggja fyrir dóm, sem og um stöðu mótmælenda á Íslandi að undanförnu, sem nýtt hafa rétt sinn til að mótmæla friðsamlega og taka þátt í pólitískri umræðu. Þá fjallaði Linda einnig nánar um málið sjálft og galla á því.

Sjá nánar hér á vef The Independent.

Þá rituðu Katrín Oddsdóttir og Linda Íris Emilsdóttir, lögmenn á Rétti, grein um málið sem birtist á Vísi 4. júní sl., þar sem áhersla var lögð á óásættanlega málsmeðferð í máli mótmælendanna, drátt á rannsókn máls hjá lögreglu og refsistefnu.