Réttur hlaut viðurkenningar í öllum flokkum alþjóðlega matsfyrirtækisins Chambers and Partners fyrir 2026. Nánar tiltekið hlaut stofan viðurkenningar á sviði úrlausnar ágreiningsmála, fyrirtækja- og viðskiptaréttar og hugverkaréttar.
Þá hlutu eigendur stofunnar, Sigurður Örn Hilmarsson og Stefán Örn Stefánsson, persónulegar viðurkenningar á sömu sviðum. Sigurður á öllum framangreindum sviðum og Stefán á sviði fyrirtækja- og viðskiptaréttar. Chambers and Partners er alþjóðlegt matsfyrirtæki sem metur gæði lögmannsþjónustu og birtir árlega mat sitt fyrir lögmannsstofur, m.a. á Íslandi.
Réttur vill koma á framfæri þökkum fyrir frábærar umsagnir sem hvetja okkur til þess að halda áfram að gera betur í dag en í gær. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá okkur færast upp í málaflokkum og að við höldum áfram að styrkja okkur á sviði fyrirtækja- og viðskiptaréttar.
Réttur hefur ávallt lagt áherslu á góða og alhliða lögmannsþjónustu þar sem þarfir viðskiptavinarins eru í fyrirrúmi. Viðurkenning Chambers and Partners er staðfesting á að sú áhersla skili árangri. Við leggjum mikla vigt á praktíska þjónustu, þar sem tími okkar skilar sem mestum verðmætum fyrir viðskiptavini okkar.