Ragnar Aðalsteinsson hlaut fálkaorðuna
Í gær, 1. janúar 2019, var Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum. Var Ragnar í 14 manna hópi og fékk viðurkenninguna fyrir framlag sitt til mannréttindamála og réttindabaráttu.
Við samstarfsfólk Ragnars á Rétti óskum honum innilega til hamingju með heiðurinn og teljum hann sannarlega vel að honum kominn.