Fréttir / News

Réttur aðstoðaði orkurisann Encevo við fjárfestingu í SnerpaPower

  |   Fréttir af stofunni

Réttur veitti orkurisanum frá Lúxemborg, Encevo, lögfræðiráðgjöf í tengslum við fjárfestingu félagsins í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu SnerpaPower.

Encevo leiddi 3,4 milljóna evra fjármögnunarlotu SnerpuPower, ásamt núverandi hluthöfum, Crowberry Capital og BackingMinds, og vaxtarstyrk úr Tækniþróunarsjóði. SnerpaPower hyggst nýta fjármögnunina til sóknar á Evrópumarkað.

SnerpaPower þróar gervigreindarhugbúnað sem tengir saman rekstur iðnfyrirtækja, raforkusamninga þeirra og raforkumarkaðinn í rauntíma. Þannig geta stórnotendur raforku spáð fyrir um þörf sína, lækkað kostnað og skapað verðmæti með auknum sveigjanleika. Hugbúnaðurinn er þegar í notkun hjá um 15 iðnverum á Norðurlöndunum.

Encevo veltir rúmlega þremur milljörðum evra á ári og starfar í Lúxemborg, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og Hollandi.

Við óskum Encevo, SnerpuPower, og öðrum þátttakendum í fjármögnuninni, innilega til hamingju með áfangann.

Sjá hér umfjöllun Viðskiptablaðsins um fjármögnunina: https://vb.is/frettir/snerpapower–/