Réttur framúrskarandi lögmannsstofa samkvæmt Legal500
Nýverið birti alþjóðlega matsfyrirtækið Legal 500 niðurstöður sínar fyrir árið 2026. Réttur hlaut viðurkenningar fyrir sín störf í fimm flokkum, þ.e. á sviði úrlausnar ágreiningsmála (Dispute Resolution), endurskipulagninga og gjaldþrotaskipta (Restructuring & Insolvency), hugverkaréttar og upplýsingatækni (TMT & IP), fyrirtækja- og viðskiptaréttar (Commercial, Corporate and M&A) og á sviði EES- og samkeppnisréttar (EEA & Competition).
Fjórir lögmenn á stofunni hlutu einnig persónulegar viðurkenningar fyrir sín störf. Sigurður Örn Hilmarsson, eigandi, hlaut „Hall of Fame“ viðurkenningu á sviði úrlausnar ágreiningsmála, auk „Leading Partner“ viðurkenninga á sviði fyrirtækja- og viðskiptaréttar, endurskipulagninga og gjaldþrotaskipta, og á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækni. Þá hlaut Stefán Örn Stefánsson, eigandi, tvær viðurkenningar sem „Next Generation Partner“, á sviði fyrirtækja- og viðskiptaréttar, og á sviði endurskipulagninga og gjaldþrotaskipta.
Að auki hlaut Alexander Hafþórsson, verkefnastjóri á stofunni, þrjár viðurkenningar sem „Leading Associate“ á sviði úrlausnar ágreiningsmála, fyrirtækja- og viðskiptaréttar, og einnig á sviði hugverkaréttar og upplýsingatækni. Jafnframt hlaut Linda Íris Emilsdóttir, verkefnastjóri á stofunni, viðurkenningu sem „Leading Associate“ á sviði úrlausnar ágreiningsmála.
Um er að ræða glæsilegar niðurstöður fyrir stofuna og þökkum við öllum umsagnaraðilum kærlega fyrir frábærar umsagnir.

