Claudie nýr eigandi á Rétti
Claudie Ashonie Wilson hefur bæst í hóp eigenda hér á Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Fjallað hefur verið um málið í fréttum Vísis og Viðskiptablaðsins í dag.
Helstu sérsvið Claudie eru útlendingaréttur og gjaldþrotaskiptaréttur. Sjá má nánari upplýsingar um náms- og starfsferil Claudie hér
„Ég þakka fyrir það traust sem Réttur og skjólstæðingar mínir hafa sýnt mér í gegnum árin og hlakka til að takast á við þessa nýju áskorun og kafla“ segir Claudie.
Réttur annast víðtæka hagsmunagæslu fyrir skjólstæðinga sína, auk þess að veita faglega og vandaða ráðgjöf á flestum sviðum lögfræðinnar. Stofan aðstoðar bæði innlend og erlend fyrirtæki, einstaklinga, félög, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög.