Fréttir / News

Réttur ráðgjafi vegna viðskipta á vettvangi SIGNO ehf.

  |   Fréttir af stofunni

Réttur var nýverið lögfræðilegur ráðgjafi hluthafa í SIGNO ehf., móðurfélagi LED Birtinga ehf. og LED Skilta ehf., m.a. í tengslum við kaup og sölu hluta á vettvangi samstæðunnar. Viðskiptin fólu t.a.m. í sér útgöngu stærsta einstaka hluthafa móðurfélagsins, innkomu nýrra fjárfesta og endurskipulagningu á eignarhaldi samstæðunnar.

Við óskum viðkomandi aðilum til hamingju með frágang viðskiptanna og þökkum fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf.

Fyrir frekari upplýsingar má sjá fréttaumfjöllun Innherja um viðskiptin hér.