Fréttir / News

Stefán Örn Stefánsson genginn í hóp eigenda á Rétti

  |   Fréttir af stofunni

Stefán Örn Stefánsson hefur gengið í hóp eigenda hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Stefán hefur starfað hjá Rétti frá árinu 2019 og sérhæft sig í ráðgjöf sem tengist fyrirtækjarekstri, s.s. fjármögnunum, kaupum og sölum á fyrirtækjum og hlotið viðurkenningu frá erlenda matsfyrirtækinu Legal500 fyrir störf sín á því sviði.

Stefán útskrifaðist sem Mag. Jur. frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2018 og hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2020 auk þess sem hann lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2023. Áður en hann hóf störf hjá Rétti starfaði hann sem lögfræðingur hjá KPMG.

Sigurður Örn Hilmarsson, eigandi á Rétti: „Þekking, reynsla og útsjónarsemi Stefáns hefur nýst vel til úrlausnar flókinna viðfangsefna fyrir umbjóðendur Réttar. Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá hann í eigendahópinn. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“

Rætur Réttar má rekja til ársins 1969 þegar Ragnar Aðalsteinsson stofnaði lögmannsstofu sína. Allt frá stofnun hefur áhersla verið lögð á framgang réttarins með manngildishugsjón að leiðarljósi og veitir Réttur þannig fólki og félögum alhliða þjónustu í sókn og vörn réttinda sinna. Stofan aðstoðar bæði innlend og erlend fyrirtæki, einstaklinga, félagasamtök, og opinbera aðila. Réttur hefur í áraraðir verið metið í fremstu röð íslenskra lögmannsstofa af erlendu matsfyrirtækjunum Chambers & Partners og Legal500 á sviði úrlausnar ágreiningsmála, ásamt því að njóta viðurkenninga frá Legal500 á hinum ýmsu réttarsviðum sem stofan þjónustar.

Fjallað hefur verið um fréttirnar af Viðskiptablaðinu og Vísi.