Lögmenn Réttar fyrir MDE
Í vikunni var greint frá því að Sigurði Erni Hilmarssyni, lögmanni og einum af eigendum Réttar, hafi verið falið að kæra staðfestingu Alþingis á kjörbréfum alþingismanna til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg. Sigurður mun kæra málið fyrir tvo frambjóðendur í Norðvesturkjördæmi, sem báðir höfðu kært framkvæmd kosninganna hérlendis. Niðurstaða Alþingis byggði á breyttri seinni talningu í Norðvesturkjördæmi, þrátt fyrir að rannsókn undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa hafi leitt í ljós alvarlega annmarka á vörslu og meðferð kjörgagna þar. Talsvert var fjallað um þessa rannsókn í október og nóvember og var Sigurður einnig í fréttum fyrir hönd kærenda í tengslum við hana.
Um hið væntanlega mál hefur Sigurður nú sagt við Morgunblaðið að það byggi á tveimur þáttum. Annars vegar hvort Alþingi hafi komist að rangri niðurstöðu um lögmæti kosninganna í Norðvesturkjördæmi í ljósi vörslu og meðferðar kjörgagna og hins vegar málsmeðferð Alþingis og getu þess til að leysa úr þessum málum. Um þetta sagði Sigurður:
„Þarna er Alþingi að skera úr um lögmæti eigin kosninga á grundvelli gagna sem enginn fær séð nema það sjálft. Sú tilhögun er mjög óheppileg og til þess fallin að draga úr trausti á afgreiðslu málsins og niðurstöðu þingsins.“ og „Mannréttindadómstóll getur komist að þeirri niðurstöðu að það hafi átt sér stað brot gegn Mannréttindasáttmálanum og sú niðurstaða er ekki ráðgefandi. Hún sem slík ógildir þó ekki niðurstöðu Alþingis en hefur engu að síður afleiðingar hér á landi.“
Áður hefur verið fjallað um um það á heimasíðu Réttar að Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lögmaður og einn af eigendum Réttar, rekur einnig nokkur mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um þessar mundir. Málin stafa frá hópi kvenna vegna brota gegn réttlátri málsmeðferð í ofbeldismálum sem eiga það m.a. sammerkt að þau voru lengi á borði lögreglu hérlendis og tafir voru á skýrslutökum bæði hjá sakborningum og vitnum. Í síðustu viku flutti Ríkisútvarpið frekari fréttir af framvindu málanna og kom fram þar að dómstóllinn hafi samþykkt átta af þeim níu málum sem kærð voru og krafið íslenska ríkið svara við tilteknum spurningum um málsmeðferðina.
Í fréttinni greindi frá að íslenska ríkið hafi hafnað bótaskyldu í málunum og skilað greinargerð sinni með svörum og vörnum í fyrri helmingi málanna. Umbjóðendur Réttar hafa einnig skilað sínum greinargerðum og sagði Sigrún um það:
„Við erum að benda á ákveðinn kerfisbundinn vanda, og með því að skila greinargerðum í átta málum á tiltölulega stuttu tímabili, þá er það gagnlegt til að sýna fram á að það er það sama sem við erum að kvarta undan eða mjög oft.“
Fleiri lögmenn Réttar hafa sérþekkingu er lýtur að rekstri mála fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og er þar nærtækast að nefna að Védís Eva Guðmundsdóttir flutti nýlega erindi á Lagadeginum um réttarfar við dómstólinn og málarekstur fyrir yfirdeild hans.